 
Hugsaðu vel um tækið þitt
Meðhöndlaðu tækið þitt, hleðslutækið og aukahluti af varkárni. Eftirfarandi 
leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.
•
Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið 
steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal leyfa því að þorna alveg.
•
Hvorki skal nota tækið á rykugum eða óhreinum stöðum né geyma það þar. 
Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar þess geta skemmst.
•
Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu 
tækisins, skemmt rafhlöðuna og undið eða brætt plastefni.
•
Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu 
hitastigi getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásir.
•
Ekki skal reyna að opna tækið.
•
Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð 
getur skemmt innri rafrásaspjöld og búnað.
•
Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og þurran klút til að hreinsa yfirborð 
tækisins.
•
Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og 
komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
Endurvinnsla
Skilaðu alltaf notuðum raftækjum, rafhlöðum og umbúðum á viðeigandi 
sorp- og endurvinnslustöð. Þannig geturðu dregið úr losun á óflokkuðu 
sorpi og stuðlað að endurvinnslu. Skoðaðu upplýsingar um umhverfisatriði 
og endurvinnslu á Nokia-vörum á www.nokia.com/werecycle eða með farsíma 
á www.nokia.mobi/werecycle.
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni, rafhlöðunni, 
bæklingnum eða umbúðunum táknar að fara verður með allan rafbúnað 
og rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma á sérstaka staði til förgunar að 
líftíma vörunnar liðnum. Þessi krafa á við innan Evrópusambandsins. 
Hendið þessum vörum ekki með heimilisúrgangi. Frekari upplýsingar um 
umhverfislega eiginleika tækisins er að finna á www.nokia.com/ecodeclaration.
 
H u g s a ð u v e l u m t æ k i ð þ i t t
19
Wolfson Microelectronics plc er leiðandi aðili á heimsvísu í framleiðslu á hágæða 
hálfleiðurum til að blanda saman merkjum fyrir almennan rafeindamarkað. 
Wolfson er þekkt fyrir mikil hljóðgæði og mjög litla orkunotkun. Íhlutir frá 
Wolfson gegna lykilhlutverki í mörgum háþróuðum rafeindavörum, þar með talið 
farsímum, margmiðlunarspilurum, flatskjáum og upplýsinga- og 
afþreyingarkerfum fyrir bíla. Wolfson-tæknin býður notendum upp á spennandi 
möguleika með því að tengja rafeindaheiminn við mannlega skynjun. 
Nánari upplýsingar um Wolfson Microelectronics, sjá www.wolfsonmicro.com.