Nokia Bluetooth Stereo Headset BH 905i - 4. Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

4. Upplýsingar um rafhlöðu og

hleðslutæki

Þetta tæki er með innbyggða, fasta, endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að
fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu, þar sem það getur skemmt tækið. Tækið er ætlað
til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3, AC-4,
AC-5, AC-15 og DC-4. Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir
klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd með einu af eftirfarandi: E, X,
AR, U, A, C, K eða B. Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð
sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér.

Endingartími er einungis til viðmiðunar. Raunverulegur tími ræðst til dæmis af
tækjastillingum, möguleikum sem eru í notkun, ástandi rafhlöðu og hitastigi.

Ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma kann að vera nauðsynlegt að
tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja það aftur til að hægt sé að
hefja hleðsluna.

Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist
á skjánum.

Þegar hleðslutækið er ekki í notkun skal taka það úr sambandi við
rafmagnsinnstunguna og tækið. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðu í sambandi við
hleðslutæki, þar sem ofhleðsla getur stytt endingu hennar. Fullhlaðin rafhlaða
tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.

Rafhlaðan skal alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C. Of mikill hiti eða kuldi
draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að
hætta að starfa tímabundið.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld, þar sem þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum
í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar
mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Aðeins skal nota hleðslutækið til þess sem það er ætlað. Misnotkun eða
notkun ósamþykktra hleðslutækja getur skapað hættu á eldi eða sprengingu
eða haft aðra áhættu í för með sér, og öll ábyrgð og samþykki sem fylgir símanum
gæti fallið niður. Ef þú telur að hleðslutækið sé skemmt skaltu fara með það
á þjónustumiðstöð til skoðunar áður en þú heldur áfram að nota það. Aldrei
skal nota skemmt hleðslutæki. Hleðslutækið skal aðeins nota innandyra.

background image

H u g s a ð u v e l u m t æ k i ð þ i t t

18