■ Viðbótarbassi og steríómögnun
Hægt er að virkja viðbótarbassann og steríómögnun meðan hlustað er
á tónlist úr samhæfum tónlistarspilara með þráðlausri Bluetooth-tækni.
Áhrifin eru í boði ef tónlistarspilarinn notast við SBC-kóðun.
Ef tónlistarspilarinn notast við beina straumspilun á MP3 eða AAC
en ekki SBC eru áhrifin ekki í boði. Nánari upplýsingar er að finna
í notendahandbók tónlistarspilarans þíns.
Til að velja áhrif meðan þú hlustar:
• Til að gera viðbótarbassann virkan skaltu ýta á valtakkann. Einn tónn
heyrist.
• Til að gera steríómögnun virka skaltu ýta aftur á valtakkann eftir eina
sekúndu. Tónn heyrist tvisvar.
• Til að gera viðbótarbassann og steríómögnun virk skaltu ýta
á valtakkann í þriðja sinn. Tónn heyrist þrisvar.
• Til að gera áhrifin óvirk skaltu ýta á valtakkann í fjórða sinn. Langur
tónn heyrist.
Höfuðtólið vistar stillinguna til notkunar síðar.
G r u n n n o t k u n
16