Nokia Bluetooth Stereo Headset BH 905i - Höfuðtólið parað og tengt við Bluetooth-tæki

background image

Höfuðtólið parað og tengt við Bluetooth-tæki

Ef farsíminn styður A2DP Bluetooth-sniðið og er með innbyggðan
tónlistarspilara geturðu notað hann til að spila tónlist um höfuðtólið.

Ef síminn þinn styður ekki A2DP-sniðið geturðu parað höfuðtólið við
símann annars vegar og tónlistarspilara sem styður sniðið hins vegar.
Ef þú hefur parað og tengt höfuðtólið við símann skaltu aftengja tækin
áður en þú parar höfuðtólið við tónlistarspilarann.

1. Gættu þess að kveikt sé á símanum eða tónlistarspilaranum.

2. Til að para höfuðtólið við tæki, hafi það aldrei verið gert áður,

skaltu gera Bluetooth-tengingu höfuðtólsins virka. Höfuðtólið fer
í pörunarstillinguna og Bluetooth-stöðuljósið fer að blikka hratt
í bláum lit.

Þegar höfuðtólið er parað, hafi það ekki fyrr verið parað við annað
tæki, skaltu gæta þess að Bluetooth-tenging höfuðtólsins sé óvirk og
halda síðan valtakkanum inni (í u.þ.b. fimm sekúndur) þar til bláa
stöðuljósið blikkar hratt.

3. Eftir u.þ.b. þrjár mínútur skaltu gera Bluetooth-tenginguna

virka í farsímanum eða tónlistarspilaranum og stilla á leit að
öðrum Bluetooth-tækjum. Nánari leiðbeiningar er að finna
í notendahandbók tækisins.

4. Veldu höfuðtólið af listanum yfir fundin tæki í símanum eða

tónlistarspilaranum.

5. Ef þörf krefur, sláðu þá inn aðgangskóðann 0000 til að para og

tengja höfuðtólið við tækið. Ef tækið er ekki með takkaborð getur
verið að það noti sjálfkrafa þetta lykilorð.

Í sumum tækjum gæti þurft að koma tengingunni á að pörun lokinni.
Aðeins þarf að para höfuðtólið einu sinni við farsímann.

Ef pörunin tekst birtist höfuðtólið í valmynd tækisins þar sem hægt er að
sjá lista yfir pöruð Bluetooth-tæki.

Þegar höfuðtólið er tengt við tækið og er tilbúið til notkunar blikkar
Bluetooth-stöðuljósið rólega í bláum lit.

background image

T æ k i ð t e k i ð í n o t k u n

11

Hægt er að para höfuðtólið við allt að átta tæki en aðeins er hægt að
tengja það við eitt tæki sem styður HFP Bluetooth-sniðið og annað sem
styður A2DP Bluetooth-sniðið í einu.