 
Nokia BH-905i Bluetooth 
steríóhöfuðtól með hávaðasíu 
Notendahandbók
9222804
Útgáfa 1 IS
 
YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan BH-905i er í samræmi við 
grunnkröfur og aðrar kröfur sem gerðar eru í tilskipun 1999/5/EB. 
Afrit af Samræmisyfirlýsingunni má finna á http://www.nokia.com/phones/
declaration_of_conformity/.
© 2010 Nokia. Allur réttur áskilinn.
Nokia, Nokia Connecting People og Nokia Original Accessories eru skráð vörumerki Nokia 
Corporation. Nokia tune er tónmerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja 
sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalsins alls 
er óheimil nema að fyrir fram fengnu skriflegu samþykki Nokia. Nokia framfylgir stefnu sem 
felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera breytingar og úrbætur á hvers 
konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar tilkynningar.
Bluetooth is a registered trademark of Bluetooth SIG, Inc.
Að því marki sem viðeigandi lög leyfa ber Nokia eða einhverjir af leyfisveitendum þess, undir 
engum kringumstæðum, ábyrgð á tapi gagna eða tekjutapi og ekki á beinu eða óbeinu tjóni, 
þar á meðal útlögðum kostnaði, tekjutapi eða missi ágóða, af hvaða orsökum sem tjón kann 
að vera.
Inntak þessa skjals er afhent „eins og það kemur fyrir“. Umfram það, er lög áskilja, er engin 
ábyrgð veitt, hvorki berum orðum né undirskilin, á nákvæmni, áreiðanleika eða inntaki þessa 
skjals. Á það meðal annars, en ekki eingöngu, við um söluhæfni eða ábyrgð á að varan henti 
tiltekinni notkun. Nokia áskilur sér rétt til að endurskoða skjalið eða draga það til baka 
hvenær sem er án undangenginnar tilkynningar.
Birgðir af vörum geta verið breytilegar eftir svæðum. Nánari upplýsingar fást hjá söluaðila 
Nokia. Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum 
og reglugerðum í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki 
samræmast lögum eru óheimilar.
9222804/1. útgáfa IS
 
3